Nanoman

Veggjakrotsvörn

Glær vörn sem ver veggi, girðingar og málma gegn veggjakroti. Krotið má fjarlægja aftur og aftur án þess að bera vörnina á að nýju.

Maður úðar veggjakroti á vegg.
Skilti frá Nanoman fyrir framan veggmálverk.

Heildarvörn gegn veggjakroti

Veggjakrotsvörn frá Nanoman er endingargóð vörn sem er borin á í einni umferð. Hún ver yfirborð gegn varanlegum skemmdum af völdum veggjakrots og gerir hreinsun fljótlega og einfalda, án þess að skemma yfirborðið, hvort sem það er málað eða ekki.

Til er veggjakrotsvörn frá Nanoman fyrir bæði gróf og slétt yfirborð. Hún eyðist ekki við hreinsun og ver eignir gegn veggjakroti árum saman. Þannig sparast kostnaður við að mála aftur yfir krot og ekki myndast ljótir blettir þar sem málað hefur verið yfir.

Veggjakrotsvörn fyrir gróf yfirborð

Anti-Graffiti Coating for Porous Surfaces er glær, endingargóð vörn sem er borin á í einni umferð og eyðist ekki við hreinsun. Hún er borin beint á beran múrstein, steinsteypu, við og máluð yfirborð með úða, pensli eða rúllu. Hún er fljótleg í ásetningu, þornar hratt og loðir vel við undirlagið.

Endingin er allt að 10 ár á lóðréttum flötum, eftir efni, notkun og viðhaldi yfirborðsins.

Um 80 til 100 ml á fermetra með úða.

Skoða vöru: Anti-Graffiti Coating for Porous Surfaces

Svona notar þú efnin

  1. Hyldu aðliggjandi fleti með límbandi. Yfirborðið þarf að vera hreint, algerlega þurrt og heilt. Steinsteypa og múr þurfa að vera fullherðnuð. Burstaðu þurrt eða þrýstiþvoðu og láttu þorna.
  2. Hrærðu hægt og vel og hrærðu aftur á 15 til 20 mínútna fresti. Ef hitinn er undir 20 °C skaltu geyma efnið innandyra daginn áður. Þú getur þynnt allt að 30% með white spirit.
  3. Berðu á eina umferð með HVLP- eða airless-úðabyssu, sem hentar best á gróf yfirborð, eða með rúllu eða pensli. Farðu í kross og ofvinndu ekki yfirborðið.
  4. Lagfærðu mistök innan um 10 mínútna. Snertiþurrt eftir 1 klukkustund og fullherðnað eftir 7 daga. Hreinsaðu áhöld með white spirit, aldrei með vatni.

Ítarlegri leiðbeiningar eru í tækniblaði vörunnar. Tækniblað og öryggisblað

Veggjakrot á múrsteinsvegg.Veggjakrot á hvítmáluðum múrsteinsvegg.

Veggjakrotsvörn fyrir slétt yfirborð

Anti-Graffiti Coating for Non-Porous Surfaces er gerð fyrir slétta málmfleti sem draga ekki í sig vökva, svo sem galvaníserað stál, ál, ryðfrítt stál og corten-stál, og fyrir dufthúðað yfirborð eins og bílskúrshurðir, tengiskápa og girðingar. Hún hentar líka á plast, PU-, epoxý- og pólýestermálningu og trefjaplast.

Vörnin myndar glæra, ósýnilega filmu. Málning og tússlitir festast illa á henni og því er fljótlegt og auðvelt að fjarlægja krot. Endingin er allt að 7 ár, eftir efni, notkun og viðhaldi yfirborðsins.

Um 10 til 12 ml á fermetra með HVLP-úða.

Skoða vöru: Anti-Graffiti Coating for Non-Porous Surfaces

Svona notar þú efnin

  1. Yfirborðið þarf að vera hreint, fitulaust og algerlega þurrt, við 5 til 30 °C og 30 til 80% raka í lofti. Fjarlægðu ryð og flagnandi málningu og fituhreinsaðu nýjan málm.
  2. Berðu á eina létta filmu með HVLP-úðabyssu, sem hentar best, með lítilli rúllu eða með pensli á óreglulega fleti. Rúllaðu aftur eftir um 30 sekúndur án þess að bæta við efni.
  3. Úðaðu ekki fram og til baka. Lagfærðu mistök innan um 10 mínútna. Berðu aðeins á eina umferð.
  4. Snertiþurrt eftir 1 klukkustund og fullherðnað eftir 5 til 7 daga. Hreinsaðu áhöld með asetoni eða n-bútýlasetati, aldrei með vatni.

Ítarlegri leiðbeiningar eru í tækniblaði vörunnar. Tækniblað og öryggisblað

Veggjakrot á tengiskápum úr málmi.Veggjakrot inni í lestarvagni.

Graffiti Remover

Graffiti Remover er hreinsirinn sem er notaður með veggjakrotsvörninni. Hann fjarlægir úðabrúsamálningu, tússliti, enamel- og akrýlmálningu af vörðu yfirborði á 2 til 3 mínútum og skemmir ekki vörnina þegar farið er eftir leiðbeiningum. Krotið er síðan skolað burt með garðslöngu eða þrýstiþvotti á lágum þrýstingi.

Um 60 til 80 ml á fermetra í hverri hreinsun.

Skoða vöru: Graffiti Remover

Svona notar þú efnin

  1. Prófaðu fyrst á lítt áberandi stað. Vinndu einn flöt í einu, um 30 cm á kant. Leggðu klút undir svæðið á lóðréttum flötum.
  2. Úðaðu eða penslaðu ríflega á, láttu virka í 1 til 2 mínútur, vættu aftur og strjúktu létt utan frá og inn.
  3. Endurtaktu ef veggjakrotið er þrjóskt. Notaðu aðeins mjúkan bursta. Skolaðu með vatni á lágum til meðalháum þrýstingi, með garðslöngu eða þrýstiþvotti sem er mest 800 psi (um 55 bör) og með viftustút.
  4. Skolaðu leifar af veggnum og jörðinni og fargaðu notuðum klútum á ábyrgan hátt.
  5. Á plasti og vínyl getur þurft að þynna efnið. Prófaðu alltaf fyrst.

Ítarlegri leiðbeiningar eru í tækniblaði vörunnar. Tækniblað og öryggisblað

Vörn fyrir veggmálverk

Veggjakrotsvörn hentar vel til að verja veggmálverk, bæði á grófu og sléttu yfirborði, innandyra sem utan. Ef krotað er á verkið má fjarlægja krotið með Graffiti Remover án þess að skemma vörnina, svo verkið haldist fallegt árum saman.

Veggmálverk á húsgafli.Veggmálverk af fugli á húsvegg.Veggmálverk á horni verslunarhúss.

Kostir veggjakrotsvarnar frá Nanoman

  • Minni tími og kostnaður við að fjarlægja veggjakrot.
  • Krotið næst af án þess að skuggi eða blettir sitji eftir.
  • Eyðist ekki við hreinsun, svo krot má fjarlægja aftur og aftur.
  • Löng ending: allt að 10 ár á grófu yfirborði og allt að 7 ár á sléttu, eftir efni, notkun og viðhaldi.
  • Glær áferð.
  • Ein umferð nægir. Engin önnur umferð, engin tvöföld þrif og engin bið eftir að hægt sé að bera á aftur.
  • Einfalt að bera á með pensli, rúllu eða úða.
  • Engin sérhæfð hreinsifyrirtæki nauðsynleg, því hver sem er getur fjarlægt krotið.
  • Þegar krot er fjarlægt fljótt er síður krotað aftur á sama stað.
  • Ekki þarf að mála yfir krot aftur og aftur og engir mislitir blettir myndast.

Hvar hentar vörnin?

  • Steinsteypa, múrsteinn og hlaðnir veggir.
  • Náttúrusteinn.
  • Málað yfirborð, bæði steinsteypa og málmur.
  • Málmar og plast.
  • Leikvellir.
  • Almenningsrými, friðaðar byggingar og eignir sveitarfélaga.
  • Skilti, bæði máluð og með vínylstöfum.
  • Nýbyggingar, þar sem gera má ráð fyrir vörninni strax í hönnun.
  • Vegir og mannvirki, svo sem hljóðmanir, stoðveggir, brýr og undirgöng.
  • Biðskýli, stöðvar og almenningsvagnar.
  • Verslunarmiðstöðvar, atvinnuhúsnæði og göngustígar.
  • Skólar og íþróttamannvirki.
  • Girðingar, hlið, bílskúrshurðir og grindverk.

Hve mikið efni þarf?

Sláðu inn flatarmálið og veldu efni. Reiknivélin miðar við meðalþekju úr tækniblöðum Nanoman. Gleypni yfirborðs er mjög mismunandi, svo gott er að gera ráð fyrir aðeins meira efni.

m²
Veldu efni

Um 80 til 100 ml á fermetra með úða.

Sláðu inn flatarmál til að sjá hve mikið efni þarf.

Með rúllu eða pensli, og á mjög gleypnu yfirborði, fer meira efni en hér er reiknað.

Skoða vöru: Anti-Graffiti Coating for Porous Surfaces

Stærra verkefni?

Fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og stærri verkefni gerum við tilboð í efni. Sendu okkur lýsingu á verkefninu og flatarmál og við aðstoðum þig við að velja rétta vörn.

Hafa samband

Myndir: Nanoman.